SÝN hefur kynnt nýja auglýsingalausn undir heitinu Auglýsinga RÍL sem sameinar hraða og sköpunarkraft samfélagsmiðla við áhrifamátt sjónvarps.
Lausnin er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og er þróuð fyrir fyrirtæki sem vilja nýta efni sem þau framleiða nú þegar fyrir samfélagsimðla enn í umhverfi þar sem áhorfið er þegar til staðar, mælt af þriðja aðila og athyglin meiri.
Auglýsinga RÍL byggir á einfaldri hugmynd, að færa reel- og story-efni frá samfélagsmiðlum yfir á einn áhrifamesta miðil landisns – sjónvarpið. Þar fær efnið nýtt samhengi með skýrum skilaboðum, kalli til aðgerða og QR kóða sem leiðir áhorfendur beint á næsta skref.
Með þessari lausn einföldum við ferlið fyrir aðila að koma sínu efni í sjónvarpsbirtingar án þess að standa frammi fyrir miklum kostnaði í framleiðslu á efni fyrir herferðir eða skilaboð sem eru jafnvel með takmarkaðan birtingatíma.
Breytt hegðun kallar á nýjar lausnir
Lausnin er þróuð fyrir breytta neysluhegðun þar sem fólk er vant hröðu, sjónrænu og skýru efni. Uppsetningin byggir á þremur lykilþáttum: sterkum skilaboðum eða vörumerki, reel- eða story-efni frá auglýsanda og aðgerðarsvæði með upplýsingum, tilboðum og QR kóða.
Á samfélagsmiðlum ertu að vona að fólk horfi og hlusti, en í sjónvarpi er fólk að horfa og hlusta. Með Auglýsinga RÍL fær efnið nýtt líf á vönduðum miðli þar sem auglýsendur fá tryggt áhorf og skýra leið til að kalla fram viðbrögð.
Verðmætin aftur inn á íslenskan markað
Á síðustu árum hefur sífellt stærri hluti íslensks auglýsingafjár flust úr landi til alþjóðlegra samfélagsmiðla og tæknirisa. Með Auglýsinga RÍL vill Sýn skapa leið til að færa hluta þessarar athygli og verðmætasköpunar aftur inn á íslenskan markað.
Auglýsinga RÍL er jafnframt hagkvæm leið fyrir fyrirtæki til að komast í sjónvarp án umfangsmikillar framleiðslu eða stórra herferða. Fyrirtæki geta nýtt efni sem þegar er til staðar og umbreytt því á einfaldan hátt í sjónvarpsherferð.
Hvernig virkar þetta?
Ferlið er einfalt
Nokkrar mismunandi pallettur er hægt að velja úr sem bakgrunn þar sem samfélagsmiðlaefni spilast með skilaboðum frá fyrirtækjum. Allt efni er síðan sent á auglýsingadeild SÝN með lógó fyrirtækis, skilaboðum og fyrirsögn fyrir auglýsinguna. Einnig er hægt að setja inn QR kóða ef aðilar vilja bjóða upp á möguleikan að notendur geti skannað á símum til að fá lendingarsíðu.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá sýnidæmi um bakgrunna í boði enn ítarlegri upplýsingar um skil og möguleika í boði er hægt að finna hér
Dæmi um sniðmát fyrir Auglýsinga RÍL
Auglýsinga RÍL Sniðmát dæmi