Fara á efnissvæði

PPM

PPM (Portable People Meter) er tæki sem Gallup notar til áhorfsmælinga. Gallup notar handahófskennt 500 manna úrtak sem ber þessa mæla á sér. Mælarnir greina merki í hljóði útsendingar sem skilar sér í nákvæmri greiningu á áhorfi. Þannig er hægt að reikna áhorf Íslendinga á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.

Gross Rating Points

GRP (Gross Rating Points) er mælieining fyrir árangur auglýsingaherferðar. GRP er margfeldi dekkunar og tíðni.

Dæmi: Ef auglýsingaherferð nær til 50% þjóðarinnar að meðaltali tvisvar sinnum þá er GRP hennar 50 x 2 = 100.

CPM

CPM (Cost per Mile) er kostnaður á hverja þúsund. CPM sýnir hvað kostar að ná til 1.000 einstaklinga.

Dæmi: Ef auglýsingar fyrir þátt kosta 100.000 krónur og 30.000 manns horfa á auglýsingarnar þá er CPM = [verð]/([áhorfendur]/1.000) eða 100.000/(30.000/1.000) = 3.333.

Ratings%

Ratings% (Ratings Hlutfall) er meðaláhorf á hverja mínútu útsendingar eða tímabils sem valið er.

Dæmi: Þáttur er tvær mínútur á lengd í landi með 20 íbúum. Á fyrri mínútuna horfa 10 manns (10/20 = 50% allra) og á seinni mínútuna horfa 5 manns (5/20 = 25% allra). Meðaláhorfið er þá (50%+25%)/2 = 37,5%.

Reach

Reach (Dekkun) er fjöldi fólks sem varan nær til í ákveðnum markhópi.

Reach%

Reach% (Dekkun, hlutfall) er hlutfall af markhópi sem horfir á 5 mínútur eða meira af útsendingu.

Frequency

Frequency (Tíðni) er hversu oft áhorfendur sáu auglýsingu að meðaltali í auglýsingaherferð. Formúlan er: [Fjöldi áhorfa]/[Dekkun auglýsingar].

Dæmi: Tvær birtingar eru í auglýsingaherferð í 20 manna landi. Önnur auglýsingin nær til helmings íbúa í landinu (50%) hin auglýsingin nær svo til hins helmingsins. Fyrri auglýsinguna sáu því 10 manns og seinni 10 manns. Samtals sáu því 20 aðilar auglýsinguna. Dekkunin var einnig 20. Að meðaltali sá því hver íbúi auglýsinguna 20/20 = 1 sinni.

Share

Share (Hlutdeild) er hlutfall þeirra sem horfa á okkar stöðvar af öllum þeim sem eru að horfa á sjónvarp á sama tíma. Formúlan er því [Fjöldi að horfa á dagskrárlið]/[Fjöldi sem er að horfa á sjónvarp]

Dæmi: Í 20 manna landi eru 10 að horfa á sjónvarpið klukkan 18.30. Af þeim eru 8 að horfa á Stöð 2, sem þýðir 80% hlutdeild.