Fara á efnissvæði
Til baka

SPURNINGAKEPPNI FJÖLMIÐLA 2026

Hefst mánudagur 23. mars
SPURNINGAKEPPNI FJÖLMIÐLA 2026
  • mar - apr
  • Bæði kyn
  • Allt landið
  • 12 - 70+ ára

Logi Bergmann tekur á móti eldkláru fjölmiðlafólki á Bylgjunni yfir páskana í uppáhalds spurningakeppni þjóðarinnar. Hlustendur spreyta sig á fróðlegum og fjölbreyttum spurningunum heima í stofu meðan páskaeggin renna ljúflega niður. Þættirnir verða teknir upp 23. og 24. mars.

Spurningakeppninni verður útvarpað samtímis á Bylgjunni og á Vísir.is eftirfarandi daga:

  • Skírdag frá kl. 16 - 18.30.
  • Föstudaginn langa frá kl. 16 - 18.30.
  • Páskadag frá kl. 16 - 18.30 (úrslit).
  • Annan í páskum frá kl. 10 - 12 (endurflutningur).

INNIFALIÐ FYRIR SAMSTARFSAÐILA:

  • Bylgjan framleiðir trailer sem er spilaður að lágmarki 5 sinnum á dag alla dagana frá 27.mars til 6.apríl
    þar sem fram koma upplýsingar um spurningarkeppnina og vinningana. Trailerinn endar svo á „Í samstarfi við…“.
  • Kostunarskilti „Í samstarfi við” birtast í 2 x sinnum á klukkustund í keppninni sjálfri.
  • Vefborðar á Vísi þar sem spurningakeppnin er auglýst sem birtir eru frá 27.mars til 6.apríl.
    Lógó samstarfsaðila eru á vefborðunum.
  • Lógó samstarfsaðila á auglýsingum fyrir þáttinn á samfélagsmiðlum og á endaskilti fyrir þáttinn á Vísi.
  • Þáttastjórnandi kemur á framfæri upplýsingum um vinninga í þættinum.
  • Möguleiki á vöruinnsetningu í setti í samráði við viðskiptastjóra og dagsskrárstjóra.
  • Auglýsingainneign að andvirði 150.000 kr. + vsk. sem kostandi getur ráðstafað að vild í mars og apríl.

Verð

200.000

Verð án VSK